LÝSING Á TÍMUM - SKILYRÐI FYRIR ÞÁTTÖKU - PERSÓNULEGUR BÚNAÐUR:
- Persónuhlífar eru ekki taldar upp hér að neðan í öllum tímum en er það á ábyrgð nemenda/forráðamanna að ákveða um notkun þeirra.
- Þegar talað er um júdógalla er eingöngu átt við hvíta eða bláa júdó/bjj galla. Ekki skal blanda litum saman (dæmi: blár toppur og hvítar buxur). Galli skal vera hreinn og nemendur með klipptar neglur (Hægt að gera einhverjar undantekningar fyrir konur. Rætt skal um slíkt við þjálfara) og ekkert skart eða aukahluti sem valdið geta meiðslum. Nemendur eru beðnir um að passa að vera með hreinar hendur og fætur. Best er að þvo galla sem oftast en á lágum hita því þeir minnka í suðuþvotti.
Gracie Jiu-Jitsu - Blábeltingar: Bæði sjálfsvarnarmiðað Jiu-Jitsu og BJJ í bland. Stundum eru notaðir MMA hanskar á sjálfsvarnaræfingum. Fyrir nemendur sem hafa blátt belti eða hærra í Gracie Jiu-Jitsu. Búnaður er júdógalli og MMA hanskar.
Gracie Jiu-Jitsu - Byrjendur: Sjálsvarnarmiðað Jiu-Jitsu. Fer fram ýmist með tæknilegum æfingum og/eða glímum. Fyrir alla nemendur 17 ára og eldri. Búnaður er júdógalli.
Gracie Jiu-Jitsu - 13-16 ára: Sjálsvarnarmiðað Jiu-Jitsu. Fer fram ýmist með tæknilegum æfingum og/eða glímum. Fyrir alla nemendur 13-16 ára. Búnaður er júdógalli.
Gracie Jiu-Jitsu - 12 ára og yngri: Sjálsvarnarmiðað Jiu-Jitsu. Fer fram ýmist með tæknilegum æfingum og/eða glímum. Fyrir alla nemendur 12 ára og yngri. Mjög ungir nemendur skulu vera í fylgd forráðamanna sé þess þörf. Búnaður er júdógalli en karategalli dugar fyrir þau yngstu. Forráðamönnum er heimilt að fylgjast með tímum.
Gracie Jiu-Jitsu - Basic 88: Fyrstu 88 grunnbrögð Gracie Jiu-Jitsu. Engar glímur eru í þessum tímum en sjálfsvarnaraðferðir drillaðar til að þjálfa tímasetningu og tækni. Fyrir alla nemendur 14 ára og eldri. (Aldurstakmark gæti hækkað í 17 ára eftir aðsókn). Búnaður er júdógalli.
No-Gi BJJ: Keppnismiðað Braselískt Jiu-Jitsu án búnings. Fyrir alla nemendur 14 ára og eldri. Búnaður eru stuttbuxur og bolur. Gott er að nota hnéhlífar sem koma í veg fyrir bruna á húð.
Open Mat: Salurinn er opinn fyrir alla þá nemendur sem fengið hafa leyfi þjálfara til að stunda þá tíma. Engin kennsla fer fram en nemendur og kennarar koma saman til að glíma. Kvöldtímarnir á þriðjudögum og fimmtudögum eru fyrir 17 ára og eldri en á föstudögum fyrir 14 ára og eldri. Nemendur ráða sjálfir hvaða búnað þeir nota.
Judo: Kenndar helstu aðferðir júdó og lögð áhersla á að ná yfirburðum standandi og ná mótaðila í gólfið og enda í yfirburðarstöðu. Fyrir alla nemendur 14 ára og eldri. Búnaður er júdógalli.
Muay Thai: Tælenskir hnefalekar. Kennt af tælenskum leiðbeinanda og gerð krafa um að nemendur virði tælenska siði í Muay Thai tímum. Fyrir alla nemendur 17 ára og eldri. Búnaður eru stuttbuxur og bolur, handavafningar og boxhanskar. Mælt er með ökklahlífum.
Ólympískir Hnefaleikar (Box): Fyrir alla nemendur 17 ára og eldri. Búnaður er innanhússtrigaskór, buxur/stuttbuxur, bolur og munnstykki.
Þrekþjálfun: Fyrir alla nemendur 17 ára og eldri. Búnaður er íþróttafatnaður en engir skór þar sem kennslan fer fram á sérstöku gólfi sem ekki er gert fyrir skófatnað. Kennslan er byggð að mestu á Kettlebells og CrossFit.
Einkatímar í Jiu-Jitsu: Einkaþjálfun þar sem annað hvort er tekið á ákveðnu viðfangsefni að ósk nemandans eða unnið með það sem þjálfari telur við hæfi. Búnaður er að öllu jafna júdógalli nema annað sé tekið fram.