|

Við bjóðum nemendum okkar, 14 ára og eldri, upp á Judo tíma á laugardögum. Þessir tímar eru aðalega hugsaðir til þess að hjálpa Jiu-Jitsu fólki að ná aukinni færni við köst og að ná mótaðila í gólfið. Tímarnir eru almennt kenndir af svartbeltingum í Judo en einstaka sinnum er Jiu-Jitsu þjálfari sem kennir köst eða Jiu-Jitsu takedowns.
|