|

Við bjóðum nemendum okkar, 17 ára og eldri, upp á Muay Thai, tælenska hnefaleikaíþrótt sem þekkt er fyrir að notaðir eru 8 "útlimir", hendur, olnbogar, hné og sköflungar í stað tveggja eins og í vestrænum hnefaleikum. Æfingar eru tvisvari í viku og hugsaðar sem viðbót við Jiu-Jitsu dagskránna. Auk þess sem skemmtilegt er að læra Muay Thai þá eru þetta góðir tímar til að byggja upp þrek, styrk og ná góðri brennslu. Þjálfari er tælendingurinn Kriangkrai Yodsongtrakul (Gobbi) sem hefur æft og keppt í Muay Thai, Muay Boran og Krabi Krabong í heimalandi sínu auk þess sem hann vann til silfurverðlauna í Thailandsmóti í Krabi Krabong (1995) sem er tælensk bardagaíþrótt þar sem barist er með vopnum. Nemendur þurfa að mæta með eigin boxhanska og vafninga. Klæðnaður eru síðar/víðar stuttbuxur og bolur.
|