|
 Við bjóðum nemendum okkar, 17 ára og eldri, upp á tvær æfingar á viku í ólympískum hnefaleikum. Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar hefur fulla umsjón með kennslunni og fer kennslan fram í vel útbúnu húsnæði þeirra á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá klukkan 20:00 til 21:00. Staðsetningin er Dalshrauni 10 sem er aðeins fjórum húsum frá æfingarhúsnæði okkar í Trönuhrauni. Nemendur þurfa að mæta með eigin tanngóm/munnstykki og í innanhússtrigaskóm.
|