|
Nemendur þurfa alltaf að taka próf undir svartbeltingi til að fá nýjan lit af belti. Próf eru haldin á um þriggja mánaða fresti en þá koma svartbeltingar til landsins og sjá um prófin. Hér er upptaka af bláabeltisprófi sem Keith Owen hélt fyrir Pedro Sauer, en þau próf felast annars vegar í því að sýna fram á kunnáttu í glímutækni og sjálfsvörn og hins vegar lágmarks getu í glímu. Bláa beltið táknar að viðkomandi kann grunninn í Gracie Jiu-Jitsu og er tilbúinn að takast á við hugsanlega líkamsárás. Fyrir fjólubláa beltið þarf að sýna aukna sjálfsvarnarkunnáttu, og glímugeta þarf að hafa aukist til muna og gerð krafa um að viðkomandi sé farinn að blanda brögðum saman í fléttur. Fyrir brúna beltið er gerð krafa um að nemandinn kunni alla sjálfsvarnarskrá Helio Gracie sem meðal annars inniheldur vörn gegn skotvopnum, eggvopnum, kylfum o.þ.h og hafi aukið glímugetu til muna. Fyrir svarta beltið þarf að kunna alla sjálfsvörn Helio Gracie og geta framkvæmt hana óaðfinnanlega auk þess að uppfylla skilirði um getu í glímu og hafa æft í 10 ár.

Öll próf veita belti beint undir Pedro Sauer, fyrstu kynslóðar 8. gráðu svart (coral) belti frá Helio Gracie og Rickson Gracie.
Svart belti tekur að lágmarki 10 ár sem er mun lengra en í flestum sjálfsvarnaríþróttum. Til að mynda er algengt að það taki 4 ár að fá svart belti í karate sem er svipaður tími og tekur að fá fjólublátt belti í Gracie Jiu Jitsu. Svart belti er tekið í 26 þrepum en algengast í öðrum sjálfsvarnaríþróttum eru 10 þrep sem kallast kyu. Á hverju svörtu belti eru gráður, frá 1 upp í 6, en eftir það er 7. og 8. gráðu belti rautt/svart að lit og síðast 9. gráðu sem er rautt. Á hverju belti vinnur viðkomandi sig upp fjórar rendur áður er hann má taka próf til að fá næsta lit. Í Gracie Jiu Jitsu eru það einungis svartbeltingar sem mega prófa nemendur og veita belti og því eru öll próf hjá okkur framkvæmd af svartbeltingum undir Pedro Sauer eða honum sjálfum. Ákveðnir kennarar hafa þó heimild til að setja rendur á hvít belti í umboði Pedro Sauer en þær, ólikt röndum á lituðum beltum, eru settar á beltin út frá ástundun. Öll önnur belti þarf próf til að fá og einstaklingar eru metnir eftir kunnáttu, getu, og æfingatíma til að fá rendur. Prófin og beltakefið við við notum eru komin til Pedro Sauer frá Rickson Gracie. Börn yngri en 16 ára eru með annað litakerfi en fullorðnir. Þau fara upp í fjórar rendur í hvítu belti og þá yfir í hvítt/gult, gult, gult/appelsínugult, appelsínugult, appelsínugult/grænt og að lokum grænt. Ekki er hægt að vinna sér inn blátt belti fyrir 16 ára aldur. Við 16 ára aldur fer viðkomandi yfir í beltakerfi fyrir fullorðna. 
|