|
Gracie Jiu Jitsu, sem Helio Gracie kom fyrst á sjónarsviðið, öðlaðist heimsfrægð þegar Royce Gracie tókst á við keppendur í flestum tegundum sjálfsvarnaríþrótta á "UltimiteFighting Championship" mótunum sem haldin voru í Ameríku á meðan eldri bróðir hans, Rickson Gracie, gerði garðinn frægan og sigraði Vale Tudo í Japan. Síðan þá hefur Gracie Jiu Jitsu verið tekið upp af flestum sem keppa í "full contact" keppnum, lögregluembættum víða um heim og er núna formlega hluti af bardagaaðferð bandaríska hersins.
Gracie Jiu Jitsu hefur verið kennt hópum á borð við FBI, Secret Service, Navy Seals, Army Rangers, Special Forces, CIA, og mörgum öðrum löggæslustofnunum, og auk þess mörgum framúrskarandi sérsveitum á alþjóðlegum vettvangi sem og Israel Security Agency og British Police Special Operations Group.
Gracie Jiu Jitsu er form af Brazilian Jiu Jitsu (BJJ) sem fyrst var stundað í Brasilíu af Gracie fjölskyldunni. Helio Gracie breytti íþróttinni til muna þegar hann aðlagaði það að sínum eigin líkamlegu veikleikum og þurfti að treysta á tækni og vogarafl frekar en styrk og snerpu. Það var þá sem að Gracie Jiu Jitsu varð til. Gracie Jiu Jitsu er aðalega miðað að sjálfsvörn þó svo að sumir sem það stunda taka þátt í BJJ keppnum. Þessi tvö afbrigði íþróttarinnar eiga sama uppruna og að flestu leiti eins en áherslurnar misjafnar. Helio Gracie lagði megin áherslu á sjálfsvarnargildi þess Jiu-Jitsu sem hann bjó til og kallaði Gracie Jiu-Jitsu þar sem lært er að verja sig frá hnefahöggum, spörkum, hnífum, kylfum, tekist á um skotvopn o.þ.h. á meðan flestir sem æfa sport BJJ leggja áherslu á keppnismiðaðar aðferðir en þó er þetta ekki algild regla og mjög misjafn hvernig er æft. Sumir æfa fyrir keppnir, aðrir bara sjálfsvörn og enn aðrir blanda þessu tvennu saman að einhverju leiti. Gracie Jiu-Jitsuið hans Helio Gracie fylgir fyrirfram ákveðinni kennsluskrá sem samandstendur af sjálfsvörn og glýmu og áherslan á sjálfsvörnina eykst þeim mun lengra sem menn eru komnir. Þeir sem æfa Gracie Jiu-Jitsu geta rakið beltið sitt aftur til Helio Gracie. Við æfum undir Professor Pedro Sauer sem er 8. gráðu svartbeltingur undir Helio Gracie, hefur æft undir honum í 40 ár við hlið manna eins og Rickson, Royce, Rorion og fl. Professor Sauer var kosinn, í stærstu skoðanakönnun (ADCC) sem gerð hefur verið um allan heim árið 2006, besti þjálfari í heimi. 
Pedro Sauer og Rickson gracie á æfingu. 
Pedro Sauer og Royce Gracie við kennslu. 
Helio Gracie og Pedro Sauer við kennslu.
Síðast uppfært ( Thursday, 25 February 2010 17:02 )
|