Gracie Combatives

GRACIE COMBATIVES FOR LAW ENFORCEMENT AND MILITARY.

 

Sagan:
Gracie fjölskyldan hefur stundað sjálfsvarnaríþróttir í 80 ár. Þeir eru þekktir um allan heim fyrir þekkingu sína í sjálfsvörn, sérstaklega eftir stórkostlegan árangur í Ultimate Fighting Championship, sem er blönduð sjálfsvarnarkeppni hönnuð af Rorion Gracie. Rorion er þekktur fyrir að hanna ýmis sérhæfð sjálfsvarnarnámskeið, þar á meðal RAPESAFE®, námskeið sem er nýtt á nálinni sem veitir hvaða konu sem er, burt séð frá aldri, stærð eða líkamsburðum, getu til að verjast kynferðislegri árás og G.A.R.D.® (Gracie Air Rage Defense), sem sett var af stað fyrir 9/11 (ellefta september), og er hannað fyrir flugáhafnir til að yfirbuga stjórnlausan flugfarþega.

Gracie Combatives® lausnin:
Fyrir mörgum árum leituðu nokkur lögregluembætti í Bandaríkjunum til Rorion Gracie og báðu hann að hanna kerfi sem gerði lögreglumönnum kleift að takast á við ofbeldisfulla einstaklinga, tryggja öryggi lögreglumanna og láta það standast fyrir dómstólum. Niðurstaðan varð Gracie Combatives®. Áður þekkt sem GRAPLE (Gracie Resisting Attack Procedures for Law Enforcement) sem þýða má yfir á íslensku eitthvað á þessa leið "Gracie árasarvörn fyrir lögræsluaðila". Frá tilkomu Gracie Combatives®, hefur það verið kennt FBI, Secret Service, Navy Seals, Army Rangers, Special Forces, CIA, og mörgum öðrum löggæslustofnunum, og auk þess mörgum framúrskarandi sérsveitum á alþjóðlegum vettvangi sem og Israel Security Agency og British Police Special Operations Group. Bandaríski herinn hefur nú endurskrifað bardagakennsluna sína til þess að innihalda Gracie Combatives® aðferðirnar sem þeir hafa lært hjá Rorion Gracie. Rorion Gracie er sannfærður eftir að hafa séð þá virkni sem Gracie Combatives® hefur að bjóða, að starfsmenn lögregluembætta vilji gera Gracie Combatives® hluta af grunnþjálfun lögreglumanna. Markmið Gracie Combatives® er að auka öryggi og fagmannleg vinnubrögð lögreglumanna. Auk þess að fækka slysum hjá lögreglumönnum og hinum handteknu. Rorion Gracie leggur gríðarlegan metnað bæði í að hanna kennslu sem skólinn stendur fyrir og að halda henni góðri með endurmenntun, endurskoðun og samvinnu við löggæsluembætti og þjálfara sem kenna á hans vegum.

Spurningar og svör:

Hvað er markmiðið með Gracie Combatives®?
Markmið Gracie Combatives® er að auka öryggi lögreglumanna þegar þeir lenda í átökum gegn stærri og sterkari einstaklingi og þá sérstaklega þegar átökin enda á jörðinni. Kennt er að koma í veg fyrir að mótaðilinn geti tekið vopn úr tækjabelti lögreglumannsins og beitt því gegn honum. Markmiðið er að auka færni lögreglumannsins í að handtaka mótaðilann, gera hann óvirkan, eða halda honum þar til að aðstoð berst eftir því hvað við á. Gracie Combatives® stendur fyrir "Gracie vörn gegn árás fyrir löggæsluaðila"

Hverjir geta mætt á Gracie Combatives® námskeið?
Einstaklingar sem starfa hjá lögreglu-, tolla-, og/eða sýslumannsembættum geta sótt Gracie Combatives® námskeið. Framvísa þarf sönnun um starf. Einnig eru í boði námskeið fyrir fólk í öryggisstörfum.

Hvers vegna stendur Gracie Combatives® vel að vígi fyrir dómsstólum?
Þar sem að aðferðirnar byggjast á vogarafli og tækni, fremur en spörkum og hnefahöggum, eru meiðsli mótaðilans minnkuð til muna. Auk þess þurfa lögreglumenn síður að beita valdbeitingarúrræðum sem og kylfum, gasúða eða skotvopnum. Lögsóknir og kærur vegna lögregluofbeldis, sem eru mikið umhugsunaratriði fyrir yfirmenn í löggæslu víða, hafa minnkað þónokkuð með tilkomu Gracie Combatives®. Öryggi lögreglumanna hefur aukist til muna hjá þeim embættum sem bjóða upp á reglulegar Gracie Combatives® æfingar. 

Hvar er hægt að komast á námskeið?
Einstaklingar sem starfa hjá lögreglu-, tolla-, og/eða sýslumannsembættum geta óskað eftir þáttöku á fyrirfram auglýstu námskeiði. Einnig eru í boði námskeið fyrir fólk í öryggisstörfum. Embætti og hópar geta óskað eftir námskeiði í heimabyggð sína.

Geta önnur embætti eða stofnanir eins og slökkvilið, flugáhafnir, örryggisfyrirtæki, eða sjúkrahús óskað eftir Combatives
námskeiði þó starfsemin snúist ekki um löggæslu en geta þurft að eiga við erfiða og jafnvel hættulega einstaklinga?

Já, en þá heitir námskeiðið ekki Gracie Combatives® en byggist á sama grunni. Búið er þá að taka út tæknileg smáatriði sem fjalla alfarið um löggæslu, handtökur og lög en í stað þess lagt áhersla á sérstakar kringumstæður viðkomandi vinnuhóps. Námskeiðið byggir á Gracie Jiu Jitsu og kennir neyðarvörn á sama hátt og Gracie Combatives® Veitt er þá viðurkenning fyrir þátttöku á  neyðarvarnarnámskeiði í stað Gracie Combatives®.

Hverjir kenna Gracie Combatives®?
Allir viðurkenndir Gracie Combatives® kennarar eru þjálfaðir og prófaðir af Gracie fjölskyldunni og stunda endurmenntun hjá Gracie Jiu Jitsu Academy.

Síðast uppfært ( Friday, 19 March 2010 23:13 )