Gracie Jiu Jitsu - Pedro Sauer Team
Tilkynningar og fréttir

Lokun yfir verslunarmannahelgi.
28.07.2010
Lokað verður föstudag, laugardag og mánudag yfir verslunarmannahelgi. 

 

Nýtt húsnæði, opnunartilboð.
16.07.2010

Það er sönn ánægja að tilkynna að náðst hafa samningar um nýtt húsnæði fyrir skólann. Húsnæðið, sem er staðsett í Hafnarfirði, er mun stærra og betra húsnæði en við erum í núna. Þetta verður auglýst nánar síðar. Stefnt er á að vera að fullu flutt í síðasta lagi 1. September. Verðskrá hefur verið breytt lítillega og er búið að bæta við árskorti. Í tilefni af opnuninni bjóðum við 10 fyrstu sem kaupa árskort að fá kortið á 59.000. Þetta tilboð gildir eingöngu fyrir fyrstu 10 og til 5. ágúst.  

 

 
Námskeið með Matt Strack.
02.07.2010
Matt Strack, svartbeltingur hjá Pedro Sauer mun kenna Gracie Jiu-Jitsu námskeið á laugardaginn 10. júlí klukkan 09:00-12:00 og 14:00-17:00. Hafið samband við yfirþjálfara til að panta pláss. 

 

Minniháttar breyting á laugardagstímunum í sumar.
27.06.2010
Í sumar verða kenndir Júdó og BJJ tímar í bland. Iðkendur þurfa að mæta búnir fyrir annað hvort Júdó eða No-Gi BJJ tíma. Tíminn er frá 10:00 til 11:30 og er tilkynnt við mætingu hvort verður kennt í búning eða ekki. Gert er ráð fyrir að þegar ferðamannatíma líkur í haust verði laugardagarnir endurskoðaðir að nýju.  

 

Boxtími fellur niður á mánudag.
27.06.2010
Mánudaginn 27. júní fellur boxtími niður klukkan 20:00. 

 

Engin kennsla á 17. júní.
15.06.2010
Þjóðhátíðardagurinn 17. júní er á fimmtudag og fellur öll kennsla niður í sjálfsvarnaríþróttum. 

 

Útiæfing hjá CrossFit Hafnarfjörður á laugardagsmorgun.
21.05.2010
Á morgun laugardag verður útiæfing í CrossFit á Víðistaðatúni. Mæting klukkan 09:10 hjá skátafélaginu Hraunbúum, Hjallabraut 51. Þetta er frír kynningartími fyrir þá sem vilja prófa CrossFit auk þess almennur CrossFit tími fyrir alla Jiu-Jitsu iðkendur í félaginu.  

 

Engin kennsla mánudag.
21.05.2010
Annar í Hvítasunnu er á mánudag og engin kennsla. 

 

Sérkjör á æfingagjöldum - 50% afsláttur.
15.5.2010
Virkir iðkendur í CrossFit Hafnarfjörður fá 50% afslátt af æfingagjöldum í sjálfsvarnaríþróttum hjá okkur.  

 

Lokað á uppstigningardag.
11.5.2010
Á fimmtudaginn er uppstigningardagur og falla allar æfingar niður. 

 

Þrektími á föstudögum færður.
04.05.2010
Þrektíminn á föstudögum hefur verið færður vegna CrossFit stundaskrár. Í stað hans er kominn tími klukkan 09:10 á laugardögum sem einnig er kynningartími fyrir almenning. Iðkendur í Jiu-Jitsu mega stunda þennan tíma þó hann sé bara ætlaður fyrir eina mætingu ef fólk er að prófa CrossFit. 

 

Námskeið á laugardag í Jiu-Jitsu og CrossFit.
29.04.2010
Á laugardaginn 1. maí verður námskeið frá klukkan 09:00 til 12:00. Jiu-Jitsu klukkan 09:00-11:00 og CrossFit klukkan 11:00-12:00. Fyrri æfingin er í gi og seinni í íþróttafatnaði. Námskeiðið er eingöngu fyrir félaga hjá Pedro Sauer. Kennarar verða Jóhann Eyvindsson og James William Goulden. Námskeiðið er frítt.  

 

Jeff Curran forfallast vegna erfiðleika í flugsamgöngum.
27.04.2010
Vegna ösku fá Eyjafjallajökli hafa flugsamgöngur verið ótraustar. Jeff Curran er með mikilvæga bardaga strax eftir ætlaða komu hans til landsins og því taldi hann nauðsynlegt að aflýsa æfingabúðunum. Við biðjumst velvirðingar á þessu. Þeir sem hafa greitt fyrir námskeiðið geta leitað til Jóhanns til að fá endurgreitt eða frítt inn á næstu æfingabúðir.  

 

Takmörkuð kennsla á sumardaginn fyrsta.
19.04.2010
Sumardaginn fyrsta (fimmtudaginn 22. apríl) fellur niður kennsla hjá börnum og unglingum. Ein æfing verður fyrir 14 ára og eldri klukkan 19:00 og Open Mat klukkan 20:00-20:30.  

 

Sameiginleg æfing Pedro Sauer og Combat Gym.
19.04.2010
Á miðvikudaginn 21. apríl verður sameiginleg BJJ æfing með félögum úr Combat Gym í Ármúla. Æfingin hefst klukkan 18:00 og er í kjallaranum á Ármúla 1. Dagskrá hjá okkur breytist ekkert við þetta.  

 

Fyrsta íslandsmeistaramót ungmenna í BJJ var í gær.
18.04.2010
 
Íslandsmeistaramótið var mjög vel heppnað. Allir keppendur stóðu sig með sóma en þeir komu frá Pedro Sauer í Hafnarfirði, Mjölni í Reykjavík og Sleipni á Suðurnesjum. Við þökkum BJÍ og öllum sem tóku þátt og stóðu að mótinu. Eftirfarandi eru niðurstöður mótsins.

 

Úrslit á Íslandsmeistaramóti ungmenna í BJJ 2010.

 

8-9  ára. -28kg.

1.Gabríel Elí Jóhannsson (Pedro Sauer)
2.Viktor Orri Long Valsson (Pedro Sauer)

 

8-9  ára. +28kg.

1.Þorvaldur Hafsteinsson (Pedro Sauer)
2.Samúel Ingi Daníelsson (Pedro Sauer)

 

10-12 ára. Opinn flokkur.

1.Rúnar Már Jóhannsson (Pedro Sauer)
2.Guðmundur Sigurðsson (Pedro Sauer)
3.Nökkvi Haraldsson (Pedro Sauer)

 

-56kg.

1.Aron Elvar Bryndísarson (Pedro Sauer)
2.Jón Pétur Sævarsson (Pedro Sauer)

 

-63kg.

1.Björn Magnús (Mjölni)
2. Brandur Máni Jónsson (Pedro Sauer)
3. Ari Jóhannesson (Pedro Sauer)

 

-70kg.

1.Viktor Gauti Guðjónsson (Mjölni)
2.Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson (Mjölni)

 

-78kg.

1.Björn Lúkas Haraldsson (Sleipni)
2. Rúnar Ívars (Pedro Sauer)
3. Sigurður Aron (Pedro Sauer)

 

-88kg.

1.Sigurbjörn Bjarnason (Mjölni)
2.Bjarki Pálsson (Mjölni)

 

Heildarstig
Pedro Sauer 27 stig
Mjölnir 13 stig

Sleipnir 3 stig

 

  

 

Upplýsingar um íslandsmeistaramót barna og unglinga í BJJ.
16.04.2010
Mæting í keppnina er í Mjölni við Mýrargötu 2 (Slipphúsið í vesturbænum, bílastæði bakatil.) Húsið opnar klukkan 12:00. Mæting keppenda er klukkan 12:30 og hefst keppnin hlukkan 13:00. Nánari upplýsingar: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða 773-0318.  

 

Vel heppnað páskamót fór fram í gær.
04.03.2010
Páskamót Pedro Sauer var haldið í gær. Eftirfarandi eru niðurstöður úr þyngdarflokkum og númer á ósóttum happadrættisvinningum.

Dregnir voru úr fjöldi góðra vinninga og þökkum við Góu og KFC sérstaklega fyrir stuðninginn. Eftirfarandi eru verðlaun sem ekki voru sótt á staðnum. Hægt er að sækja þau á opnunartíma út vikuna. 125 vann Nóa páskaegg númer 7. 15 vann Góu páskaegg númer 4, 23 vann Nóa páskaegg númer 4, 27, 54 og 57 unnu máltíð fyrir tvo hjá KFC.

 

Opinn fl Blábeltinga:

1. Björn Sigurðarson
2. Óli Haukur Valtýsson
3. Bjarni Snær Bjarnason

 

Opinn fl Hvítbeltinga:

1. Rökkvi Vésteinsson
2. Eysteinn Finnsson
3. Ýmir Vésteinsson

 

+100kg:

1. Björn Sigurðarson
2. Ýmir Vésteinsson
3. Karl Birgisson

 

-100kg: 

1. Óli Haukur Valtýsson
2. Kristín Sigmarsdóttir
3. Kjartan Freyr Hauksson

 

-81kg:

1. Rökkvi Vésteinsson
2. Aaron Vorpon Choeipo
3. Guðjón Viðar Sigurgeirsson

 

-73kg:

1. Bjarni Snær Bjarnason
2. Eysteinn Finnsson.
3. Guðmundur Marteinn Ásgeirsson

 

-66kg: 

1. Kári Sveinbjörnsson
2. Maríanna Þórðardóttir

 

Unglingar +80:

1. Óli Hreiðar
2. Halldór Zoega

 

Unglingar -80:

1. Sigurður Aron
2. Rúnar Ívars
3. Daníel Tryggvason

 

Unglingar -66:

1. Aron Elvar
2. Brandur Máni Jónsson
3. Jón Pétur

 

Börn 10-12 ára:

1. Rúnar Már Jóhannsson
2. Guðmundur Sigurðsson

 

Börn 8-9 ára:

1. Gabríel Elí Jóhannsson
2. Samúel Ingi Daníelsson

 

Tilkynning til keppenda á páskamóti. 
02.04.2010
Keppendur eru beðnir um að mæta hálftíma fyrir keppni til skráningar og vigtunar. Allir eru velkomnir að horfa á. Seldir verða drykkir (gos og orkudrykkir), súkkulaði og happadrættismiðar þar sem við erum að fjárafla fyrir dýnukaupum. 

 

Páskadagskrá.
30.03.2010
Um páskana verður dagskrá sem hér segir.
1. apríl. Skírdagur. Öll dagskrá fellur niður nema einn sameiginlegur tími 14 ára og eldri klukkan 19:00.
2. apríl. Föstudagurinn langi. Öll dagskrá fellur niður.
3. aprí. Laugardagur. Páskamót og happdrætti. Fjáröflun fyrir dýnukaupum.
5. apríl. Annar í páskum. Engin kennsla.
6. apríl. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá. 

 

Ný dagsetning á Kettlebells Level I námskeið.
26.03.2010
 
Kettlebells námskeiðið hefur verið flutt til um eina viku. Það verður haldið 8.-9. maí.

Kennari á námskeiðinu er Dave Randolph frá Iron Body Fitness.

- RKC Team Leader (by Pavel & Dragondoor 2007)

- RKC Level II (7 years)

- CST Instructor (by Scott Sonnon 2003/2008)

- AKC Coach (Valery Ferdorenko 2007) 

- Official CrossFit Affiliate since 2007 

-           

 

Páskamót Pedro Sauer haldið Laugardaginn 3. apríl.
26.03.2010
 
Laugardaginn 3. apríl verður haldið páskamót eins og hingað til. Að þessu sinni verður keppt í mun fleiri flokkum. Þá keppa bæði börn, unglingar og fullorðnir. Keppnin er innanhúsmót sem er liður í fjáröflun til dýnukaupa fyrir félagið. Einnig verður happadrætti og veglegir vinningar. Í flokkum 13 ára og eldri verður "Submission Only", þ.e.a.s. ekki keppt um stig heldur eingöngu unnið með að ná fram uppgjöf. Þá verða engin tímamörk heldur. Hjá 12 ára og yngri verður notast við stigagjöf og loturnar 2-3 mínútur eftir aldri. Í yngri hópum eru foreldrar/forráðamenn beðnir um að vera á staðnum. Eftirfarandi eru upplýsingar um tímasetnignar, flokka, aldur o.þ.h.

 

TÍMASETNINGAR: 

Kl: 10:00. Börn 8-12 ára.

Kl: 11:00. Unglingar 13-17 ára.

Kl: 13:00. Fullorðnir.   

 

ÞÁTTTÖKUGJALD:

 

Börn 8-12 ára: 500kr. 

Unglingar 13-17 ára: 1.000kr.

Fullorðnir: 1.500kr.

 

 

FLOKKAR: 

Börn 8-9 ára á árinu. (2 mín) f.d. 2001-2002

-28

+28

Börn 10 -12 ára á árinu. (3 mín) f.d. 1998-2000

-38

+38

Unglingar 13-17 ára á árinu. f.d. 1993-1997

KVK niður 1 flokk. (Submission only/Engin tímamörk) 

-53

-59

-66

-73

-81

+80

Fullorðnir 18 ára plús. f.d. 0-1992.

KVK niður 1 flokk. (Submission only/Engin tímamörk) 

-66

-73

-81

-90

-100

+100

Opinn fl hvítbeltinga (Submission only/Engin tímamörk)

Opinn fl blábeltinga (Submission only/Engin tímamörk)

 

Flokkum gæti verið breytt ef þörf er talin á því vegna þáttöku. Nánari upplýsingar um reglur og slíkt verða hengdar upp á vegg í æfingahúsnæði.

 

 

Gracie Jiu-Jitsu námskeið með Jeff Curran 2. maí.
25.03.2010

2. maí klukkan 09:00-12:00 og 13:00-16:00 verður Jeff Curran, 2. gráðu svartbeltingur í Gracie Jiu-Jitsu undir Pedro Sauer, með námskeið í Jiu-Jitsu. Jeff Curran hefur langan og góðan feril sem keppnismaður í BJJ og MMA og hefur keppt í þekktum deildum á borð við Ultimate Fighting Championship(UFC), PRIDE Fighting ChampionshipWorld Extreme Cagefighting (WEC),International Fight League (IFL), King of the Cage (KOTC) og Abu Dahbi Combat Club (ADCC). 

Skráning fer fram hjá yfirþjálfara á æfingum. Pláss er takmarkað.

Sjáið Jeff Curran í MMA bardaga hér.

Viðtal við Jeff Curran. 

 

 

Mjög vel heppnað námskeið með Allan Manganello var vel sótt.
14.03.2010

Núna um helgina kom Allan Manganello til landsins og var með námskeið laugardag og sunnudag. 30 manns mættu á námskeiðið. Allan kom til landsins með stuttum fyrirvara vegna forfalla hjá Jeff Curran. Námskeið með Jeff Curran verður skipulagt fljótlega og auglýst síðar.  

 

Kettlebells, Level I réttindanámskeið 1-2. maí.
10.03.2010

 

Viðbót í stundatöflu og minniháttar breytingar.
10.03.2010
Um komandi helgi kemur inn ný stundatafla. Búið verður að bæta við einum tíma í Muay Thai á miðvikudag og Basic88 tíminn fluttur yfir á mánudag til að hliðra til.  

 

Boxtímar falla niður mánudag og miðvikudag.
05.03.2010
Á komandi mánudag og miðvikudag falla niður tímar í Ólympískum hnefaleikum vegna fjarveru þjálfara hjá HFH.  

 

Pedro Sauer gráðaður í 8.gr rautt/svart belti.
25.02.2010

Við óskum Prof. Pedro Sauer til hamingju en hann hefur nú verið gráðaður í 8gr. rautt/svart belti. Hér sést hann á mynd ásamt Relson Gracie að fagna áfanganum.   

 

Sérkjör fyrir lögreglumenn, tollverði og fangaverði.
18.02.2010

Nú bjóðum við lögreglumönnum, tollvörðum og fangavörðum sérkjör en þeim stendur til boða 3 mánaða kort á 12.000 krónur.  

 

Minniháttar breyting á stundatöflu.
01.02.2010
Ákveðið hefur verið að færa Muay Thai tímann á mánudögum aðeins framar og hefst hann núna klukkan 18:00. 

 

Jeff Curran með námskeið 13.-14. mars.
28.01.2010

Dagana 13.-14. mars verður Jeff Curran, 2. gráðu svartbeltingur í Gracie Jiu-Jitsu undir Pedro Sauer, með námskeið frá klukkan 09:00-12:00 báða dagana. Jeff Curran hefur langan og góðan feril sem keppnismaður í BJJ og MMA og hefur keppt í þekktum deildum á borð við Ultimate Fighting Championship(UFC), PRIDE Fighting ChampionshipWorld Extreme Cagefighting (WEC),International Fight League (IFL), King of the Cage (KOTC) og Abu Dahbi Combat Club (ADCC). 

Skráning fer fram hjá yfirþjálfara á æfingum. Pláss er takmarkað og hafa Pedro Sauer nemendur forgang.

Sjáið Jeff Curran í MMA bardaga hér.

Viðtal við Jeff Curran. 

 

Við bjóðum nýjan þjálfara velkominn.
18.01.2010

James William Goulden er nýr þrekþjálfari hjá okkur. Hann hefur að baki glæsilegan þjálfunarferil og verið mjög vinsæll kennari hér á Íslandi. Búið er að skipuleggja einn fastan hóptíma með honum alla föstudaga klukkan 17:00 og hefst fyrsti tíminn á næstkomandi föstudag.  

 

Námskeið með erlendum þjálfara helgina 16.-17 janúar.
09.01.2010

Laugardaginn 16. klukkan 09:00-12:00 og sunnudaginn 17. klukkan 09:00-12:00 verður Rob Setree, þjálfari hjá Louisville Martial Arts Academy með námskeið. Rob sem er mörgum okkar vel kunnugur er aðstoðarþjálfari Allan Manganello í fullu starfi hjá LMAA. Námskeiðið kostar 4.000 krónur. Skráning og greiðsla fer fram hjá þjálfara í tímum fram að námskeiðinu. Takmarkað pláss. No-Gi BJJ og Júdó falla niður á laugardeginum.   

 

Erlendur gestur.
08.01.2010
Dagana 13. til 21. janúar verður hjá okkur erlendur gestur. Rob Setree sem er mörgum okkar kunnugur er aðstoðarþjálfari hjá Allan Manganello í Louisville Martial Arts Academy. Hann mun vera með okkur í öllum kennslustundum og kenna ásamt þjálfurum okkar. Hann mun vera með æfingabúðir dagana 16. og 17. janúar. Nánar auglýst síðar. 

 

 

Lækkun æfingagjalda og aukið úrval af tímum. Muay Thai og Ólympískir hnefaleikar hefjast.
07.01.2010
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna um lækkun æfingagjalda. Vegna góðrar aðsóknar hefur okkur tekist að lækka æfingagjöld verulega til að koma til móts við efnahagsástandið. Þriggja mánaða kort lækkar um 7.000 krónur og einkatímar um 2.000 krónur. Sjá "Æfingagjöld."

 

Frá og með mánudeginum hefst kennsla í Muay Thai sem er tælensk hnefaleikaíþrótt. Við höfum fengið til liðs við okkur tælending sem æft hefur Muay Thai frá unga aldri í heimalandi sínu og ætlar að deila kunnáttu sinni með okkur.   

 

Við höfum náð samning við Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) um að kenna nemendum okkar ólympíska hnefaleika tvisvar í viku. HFH er staðsett aðeins fjórum húsum frá æfingarhúsnæði okkar og því stutt að fara. Þar er topp aðstaða með góður þjálfurum. Við þökkum HFH kærlega fyrir að taka á móti okkur.

 

Við höfum fjölgað No-Gi BJJ tímum í tvo á viku og fjölgað Open mat í þrisvar í viku. Bætt hefur verið við einum Jiu-Jitsu tíma þar sem kennd eru fyrstu 88 grunnbrögðin í Gracie Jiu-Jitsu. Judo er ennþá kennt á laugardögum.  

 

Við hvetjum nemendur til að kynna sér nýja stundatöflu og hvaða búnað/fatnað þarf að hafa í hvaða tímum.

 

 

Jólamót Pedro Sauer fór fram í dag.
19.12.2009
Í dag fór fram mót fyrir börn og unglinga. Við fengum nokkra gesti frá Sleipni á Suðurnesjum sem kepptu í unglingaflokkum og þökkum þeim kærlega fyrir þáttökuna. Mótið fór vel fram og stóðu keppendur sig með sóma. Hér eru niðurstöður úr mótinu ásamt ljósmyndum.

Yngstu keppendurnir í 23-33kg flokki voru fjórir talsins og var (Séð frá hægri) Samúel Ingi Daníelsson (Pedro Sauer) í 1. sæti, Gabríel Elí Jóhannsson (Pedro Sauer) í 2. sæti og Þorvaldur Hafsteinsson (Pedro Sauer) í 3. sæti.


Í 40-50kg flokki  kepptu tveir keppendur og var (séð frá hægri) Rúnar Már Jóhannsson (Pedro Sauer) í 1. sæti og Nökkvi Már Haraldsson (Pedro Sauer) í 2. sæti.


Í 55-65kg unglingaflokki kepptu 5 keppendur og var (séð frá hægri) Daníel Geir Tryggvason (Pedro Sauer) í 1. sæti, Sindri Stefánsson (Sleipni) í 2. sæti og Aron Bryndísarson (Pedro Sauer) í 3. sæti.


Í 65-75kg unglingaflokki kepptu tveir keppendur og voru (séð frá hægri) Daníel S. Th. Barker (Pedro Sauer) í 1. sæti og Sigurður Aron Sigurðsson (Pedro Sauer) í 2. sæti.


Í plús 75kg flokki voru tveir keppendur og var (séð frá hægri) Björn Lúkas Haraldsson (Sleipni) í 1. sæti og Sæþór Berg Sturluson (Sleipni) í 2. sæti.


(Séð frá vinstri) Sindri Stefánsson (Sleipni) og Daníel Geir Tryggvason (Pedro Sauer) háðu hörku úrslitaglímu í sínum þyngdarflokki sem endaði með sigri Daníels. Þeir fengu sérstök verðlaun fyrir glímu mótsins.


(Séð frá vinstri) Björn Lúkas Haraldsson (Sleipni) sem vann 1. sæti í þyngsta flokknum sigraði í opnum flokki unglinga. Rúnar Már Jóhannsson (Pedro Sauer) sem einnig vann sinn flokk sigraði í opnum flokki krakka.


(Séð frá vinstri) Björn Lúkas Haraldsson (Sleipni) vann aukaverðlaun sem keppandi mótsins í unglingaflokki fyrir framúrskarandi getu. Rúnar Már Jóhannsson (Pedro Sauer) vann aukaverðlaun sem keppandi mótsins í krakkaflokki en hann sigraði allar glímurnar sínar á innan við 30 sekúndum. Daníel Geir Tryggvason (Pedro Sauer) fékk sérstök aukaverðlaun sem tæknilegasti keppandinn en hann sýndi mjög mikla tæknilega yfirburði á mótinu.

 

Innanhúsmót fyrir börn og unglinga.
12.12.2009

Laugardaginn 19. desember verður haldið innanhúsmót í Jiu-Jitsu fyrir börn og unglinga. Skráning og vigtun fer fram í kennslustund fimmtudaginn 17. desember sem er síðasta kennslustund fyrir jólafrí hjá yngsta hópnum. Keppnin hefst klukkan 13:00 og þurfa keppendur að vera mættir klukkan 12:30. Allir eru velkomnir að horfa á og hvetjum við keppendur til að mæta með vini og fjölskyldur.   

 

Jóladagskrá. 19. desember - 6. janúar.
09.12.2009
Yfir hátíðirnar verður breytt dagskrá hjá okkur þannig að laugardaginn 19. desember verður síðasta kennslustund samkvæmt stundaskrá og dagskrá hefst að nýju samkvæmt stundaskrá mánudaginn 4. janúar. Engin kennsla verður á þrettándanum 6. janúar. Sérstök jóladagskrá er sem hér segir:

Laugardagur 19. des, 10:30-12:00, Takedowns/Júdó, síðasti tími skv stundaskrá.
Mánudagur 21. des, 19:00-20:30 Blandaður tími fyrir alla hópa 14 ára og eldri.
Þriðjudagur 22. des, 19:00-20:00 Open mat fyrir alla hópa 14 ára og eldri.
Mánudagur 28. des, 19:00-20:30 Blandaður tími fyrir alla hópa 14 ára og eldri.
Miðvikudagur 30. des, 19:00-20:00 Open mat fyrir alla hópa 14 ára og eldri. 
Þriðjudagur 5. jan, fyrsti tími skv stundaskrá.
Miðvikudagur 6. jan, Engin kennsla á þrettándanum. 

 

Æfingabúðir með Keith Owen næstu helgi.
28.11.2009

Keith Owen, svartbeltingur undir Pedro Sauer, kemur til landsins í vikunni. Hann verður með æfingabúðir fyrir Pedro Sauer nemendur um helgina 5.-6. desember. Laugardag klukkan 09:00-12:00 (Gi), Laugardag klukkan 14:00-16:00 (No-Gi) og sunnudag klukkan 09:00-12:00 (Gi). Verð er 15.000. Fyrstu 20 til að bóka sig á námskeiðið fá að gjöf nýjasta DVD diskinn hans. Hægt er að skrá sig og fá nánari upplýsingar hjá þjálfara á æfingatíma.

 

Jiu-Jitsu skóli Íslands þakkar Alcan á Íslandi.
12.11.2009

Alcan á Íslandi hefur veitt barna- og unglingastarfi skólans fjárhagslegans stuðning. Alcan á Íslandi hefur undanfarin ár stutt við bakið á íþróttastarfsemi ungmenna í Hafnarfirði. Við þökkum kærlega fyrir okkur.  

 

BJJ mót hefst klukkan 10:00 á sunnudag.
05.11.2009

Á sunnudaginn næstkomandi hefst Íslandsmeistaramót í BJJ. Húsið opnar klukkan 10:00 og fyrsta glíma verður klukkan 10:30. Við hvetjum sem flesta til að mæta, horfa á og hvetja alla keppendur áfram. Í fyrra var haldið fyrsta Íslandsmeistaramótið og var mjög góð stemning. Í ár má búast við enn betri þáttöku því nú eru fleiri félög sem keppa en áður og margir góðir keppendur sem hafa skráð sig til leiks. Þar af er helst að nefna Gunnar Nelson sem hefur gert stóra hluti í Jiu-Jitsu um allan heim. Í lok dags verður keppt í liðakeppni sem er að mati margra skemmtilegasti viðburður dagsins.   

 

Kron Gracie á æfingabúðum.
4.11.2009

Við erum með góðar fréttir fyrir þá sem eru að fara í hópferðina á æfingabúðir Pedro Sauer síðar í þessum mánuði. Tilkynnt hefur verið að Kron Gracie, sonur Rickson Gracie, mun vera meðal kennara en hann bættist í hópinn eftir að Fabio Santos forfallaðist.  

 

Íslandsmeistaramót í BJJ hefst klukkan 10 á sunnudag.
03.11.2009
Íslandsmeistaramótinu hefur verið flýtt um 2 klst. Það hefst klukkan 10:00. 

 

Breytingar á fyrirkomulagi Íslandsmeistaramóts í BJJ.
28.10.2009

Þyngdarflokkar verða eftirfarandi.

 

-66
-73
-81
-90
-100
+100

Þessum flokkum verður ekki breytt og þeir verða ekki sameinaðir öðrum, nema ef brýn nauðsyn krefur. Viktað verður í Gi á mótsdag. Eftirfarandi þyngdarflokkar eru í Gi.

Kvennaflokkur verður einn opinn þyngdarflokkur.

Aldurstakmark á mótið verður 16 ár og engar undantekningar gefnar. Unglingaflokkum verður frestað fram yfir áramót.

Liðakeppni verður haldin í enda mótsins ef tími gefst. 3 í liði og einn varamaður. Mest 3 lið per félag.

Fyrirkomulagið á mótsdag er þannig að þyngdarflokkar karla verða kláraðir fyrst einsog þeir leggja sig og léttustu flokkarnir byrja fyrst. Eftir karlaflokk verður opinn flokkur kvenna og skráning í opinn flokk karla. Eftir kvennaflokkinn verður opinn flokkur karla. Ef tími gefst í endann verður liðakeppni. Verðlaun verða afhend jafn óðum.

Stjórnin vill brýna fyrir öllum keppendum að vera ekki að skera niður mikla þyngd fyrir þetta mót, heldur glíma í sinni náttúrulegu þyngd. Ef að keppendur eru of þungir fyrir þann þyngdarflokk sem þeir skráðu sig í fá þeir ekki að glíma á mótinu. Þeir verða ekki færðir um flokka eftir því sem hentar þeirri þyngd sem þeir eru í á mótsdag.

 Frá stjórn BJÍ. 

 

Allir keppendur skulu skrá sig hjá þjálfara. This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it   

 

Ný stundatafla tekur gildi.
22.10.2009
Frá og með næstkomandi mánudag, 26.10.2009, tekur ný stundatafla gildi. Börn á 12. ári og yngri færast í fyrri tímana eins og var í vor. Byrjendahóp er skipt í tvennt enda of fjölmennt í tímum. Opnir tímar í lyfingaaðstöðu breytast. Hafið samband við þjálfara ef þið eruð ekki viss í hvaða hóp þið eigið að vera. Nýir byrjendur eru hér eftir með sínar föstu æfingar á mánudögum og miðvikudögum en lengra komnir byrjendur halda sínum tímum. Vinsamlegast skoðið nýju stundatöfluna.

 

Fabio Santos á haustæfingabúðunum ásamt Pedro Sauer.
22.10.2009

Nú hafa 10 manns skráð sig í æfingaferðina til Bandaríkjanna í næsta mánuði. Það er gaman að segja frá því að Fabio Santos, rautt/svart belti undir Helio Gracie, sem var fyrstur manna ásamt Pedro Sauer til að fá svart belti frá Helio Gracie utan fjölskyldunnar mun kenna æfingabúðirnar ásamt Professor Sauer. Professor Santos er fæddur og uppalinn í Braselíu og æfði með Professor Sauer hjá Helio Gracie. Hann hefur meðal annars sigrað eftirfarandi titla:

1996 World Jiu-Jitsu Champion
1996 Pan American Champion
1999 Gameness Champion
2000 World Jiu-Jitsu Champion
2003 Pan American Champion
2003 US Open- Black Belt Masters Champion
2004 United Gracie- Black Belt Superfight Champion
2005 Black Belt Pro Am- Superfight Champion 

Auk Pedro Sauer og Fabio Santos verður Allan Manganello, Jim Kelley, Mat Strack og fjöldi annarra svartbeltinga að kenna og til mikils að hlakka. Verið er að skoða þann möguleika að gera þetta að árlegri ferð skólans okkar.

 

Hér birtum við tilkynningu frá BJÍ (BJJ Sambandi Íslands) og hvetjum okkar félagsmenn sem hafa áhuga á að keppa í BJJ að taka þátt.
22.10.2009 

Íslandsmótið í BJJ verður haldið sunnudaginn 8. nóvember 2009 í júdósal Ármanns í laugardal, við gervigrasið. Húsið opnar kl 12:00 og hefjast fyrstu glímur stundvíslega kl 12:30.

Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 4. nóvember. Mótsgjald er 1000kr og greiðast í reiðufé við komu á mótsstað. Ókeypis aðgangur að mótinu er fyrir áhorfendur.

Skráning fer fram hjá þjálfurum félagana sem síðan áfram senda sína lista yfir keppendur til stjórnar BJÍ fyrir auglýstan skráningarfrest.

Einungis skráðir félagar í BJÍ eru gjaldgengir á mótinu. Engar undantekningar verða gerðar varðandi þessa reglu.

Þyngdarflokkarnir eru eftirfarandi.

Sjá nýja auglýsingu að ofan, búið að breyta þyngdarflokkum!!!!!


Allir keppendur eru viktaðir í Gi þegar að hver flokkur er að byrja á mótsdag. BJÍ hefur þann fyrirvara að sameina flokka eftir að skráningu lýkur ef að lágmarks fjöldi þáttakenda næst ekki í hvern flokk. Þessir þyngdarflokkar eru flokkarnir sem IBJJF notar og eru notaðir á öllum Gi mótum erlendis. Sameining á flokkum verður tilkynnt eins fljótt og auðið er.

Keppendur sem ekki ná vikt verða umsvifalaust dæmdir úr leik án endurgreiðslu mótsgjalds.

Skráning í opinn flokk verður á mótsdag. Fyrirkomulag á mótsdag er að léttari þyngdarflokkar byrja. Engin beltaskipting eða styrkleikaskipting er á mótinu.

Eftir mótið er förinni haldið á Vegamót. (Vegamót Bistro/Bar Vegamótastíg 4)

Ath. Ekkert mótsgjald er fyrir stelpur á þessu móti, og það sem meira er að aðildarfélög þurfa ekki að greiða ársgjald sem annars þyrfti vegna þeirra stelpna sem taka þátt í mótinu. Stjórn BJÍ vill sjá alla kvenkyns iðkendur BJJ á Ísland taka þátt í þessu móti.

Stjórn BJÍ 

 

Við erum komin á Facebook.
09.10.2009
Slóðin okkar á Facebook er www.facebook.com/iceland.jiujitsu 

 

Vorum að fá boli og peysur í hús.
09.10.2009
Bolir í krakka og unglingastærðum M og L eru gulir. Bolirnir eru hvítir í fullorðinsstærðum S, M, L, og XL. Hettupeysur eru 50% bómull og 50% flís og fást í M, L, XL.
 

 

Small Circle Jujitsu fellur niður timabundið
08.10.2009
Þar sem að þjálfari verður erlendis mikið í Október og Nóvember munu Small Circle Jujitsu tímar falla niður tímabundið. Ný stundatafla verður tekur gildi seint í Október. 

 

Jiu-Jitsu skóli Íslands (Iceland Jiu-Jitsu Academy)
28.09.2009
Eftir tveggja ára starfsemi höfum við loksins komið nafni á skólann hjá okkur. Hingað til höfum við bara kallað okkur Pedro Sauer. Við munum enn nota það nafn til að mynda fyrir keppnislið eða eitthvað slíkt enda tilheyrir skólinn okkar Professor Pedro Sauer. Formlegt nafn er nú fundið og er það Jiu-Jitsu skóli Íslands eða Iceland Jiu-Jitsu Academy á ensku. Þar sem við erum í mjög miklu samstarfi við erlenda skóla og þjálfara töldum við nauðsynlegt að skólinn myndi bera nafn sem hentaði vel á báðum tungumálum og var það hægara sagt en gert. Nýja logoið okkar ber merki úr gömlum víkingasögum og tengist Óðni sem var goð bardagakappanna, auk þess sem þríhyrningur er helsta tákn Jiu-Jitsu. 

 

Jeff Curran kemur til Islands.
02.09.2009
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að hinn heimsfrægi MMA/Jiu-Jitsu bardagakappi Jeff Curran er væntanlegur til landsins. Jeff er svartbeltingur í Gracie Jiu-Jitsu undir Pedro Sauer. Hann er væntanlegur í byrjun Mars mánaðar og mun kenna Jiu Jitsu æfingabúðir.

 

BJJ keppni barna og unglinga fór fram í dag.
01.09.20
Í dag fór fram innahúsmót Pedro Sauer fyrir börn og unglinga í BJJ. Þetta var mjög skemmtileg keppni og höfðu krakkarnir mjög gaman af. Keppt var í fjórum flokkum og veitt voru sérstök aukaverðlaun. Keppendur mótsins voru Gabríel Elí Jóhannsson í yngri flokkum sem fór á móti keppendum sem voru 30% þyngri en hann og hafði gullverðlaun og Daníel Geir Tryggvason í eldri flokkum sem einnig vann sinn flokk á móti sér mun stærri og þyngri keppendum. Rúnar Már Jóhannsson var valinn tæknilegasti keppandi mótsins en hann sýndi mikla tæknilega yfirburði, sópaði saman 17 stigum í úrslitaviðureign, náði submisson og vann gull í sínum flokki. Brandur Máni Jónsson fékk verðlaun fyrir besta sópið en hann sýndi góð tilþrif við að koma andstæðing ofan af sér. Gabríel Elí Jóhannsson og Þorvaldur Hafsteinsson fengu verðlaun fyrir glímu mótsins. Allir keppendur stóðu sig mjög vel og sýndu af sér góða íþróttamennsku og prúða framkomu í keppninni. Það skemmtilega kom í ljós þegar farið var yfir niðurstöður mótsins að í öllum flokkum sigruðu minnstu keppendurnir. Það sýnir enn og aftur að Jiu Jitsu snýst um tækni en ekki krafta. 

 

Æfingabúðir með Allan Manganello
30.8.2009
Íslandsvinurinn Allan Manganello, svartbeltingur frá Pedro Sauer og Rickson Gracie, kemur til landsins í næstu viku. Allan og Rebekah, unnusta hans, munu dvelja á landinu í tæpa viku. Allan mun kenna 9 klukkutíma langar æfingabúðir. Laugardaginn 12. september klukkan 09:00-12:00 og 14:00-17:00, og sunnudaginn 13. september klukkan 09:00-12:00. Fyrir utan einn lausan einkatíma á seinnipart sunnudags er uppselt í einkatímana.

 

 

Síðast uppfært ( Wednesday, 28 July 2010 21:21 )